jæja..hæ þið

..nú er ég búnað fara í ferðalag sumarsins og er
komin heil heim frá Eskifirði..þetta var rosa skemmtilegt
ferð..löggðum af stað á Eskifjörð kl ca 01:13 á föstudagsnóttina og
vorum komnar kl ca 5 á eskifjörð..og vöktum liðið..enda var það
tilgangurinn með að fara svona seint af stað að mæta á staðinn með
stæl um miðja nótt og vera nett pirrandi..gerir komu okkar
eftirminnilegri

..þegar við vorum búnar sitja inní stofu í nokkra
stund..tala geðveikt hátt og vera með fyllibittulæti..en við vorum
auðvitað ekkert fullar svo mér finnst þetta með fillibittulætin
nokkuð góður árangur hjá okkur

..þá fórum við að sofa og vöknuðum
tímanlega í brunsh..sem aðrir voru vitanlega búnir að elda handa
okkur því við eru svo miklar drottningar..svo lágum við í leti fram
eftir degi og íhuguðum að gera eitt og annað..ýmsar hugmyndir í
gangi en e-h lítið varð úr framkvæmdum sökum leti..

enda var þetta
ágætt..planið var svo að fara í útilegu á Fáskrúðsfjörð um
kvöldið..okkur var tilkynnt það svona í óspurðum fréttum þegar við
komum..og fara á dansiball, svo við skelltum okkur í hórugallann og
úlpu og strigaskó og brunuðum á Fáskrúðsfjörð á fína súbbanum hans
Sigga..og vitanlega var ég látin keyra, enda besti bílstjórinn..í
ralli allavega að áliti farþega minna..

..þegar við komum á
Fáskrúðsfjörðinn..í mígandi rigningu.. var Guðni ekki einu sinni
búnað tjalda fortjaldinu á tjaldvagninum og setja borð og stóla og
svona svo við þurftum að gera það sjálfar..eða bara sitja útí
rigningunni sem okkur fannst ekkert mjög spennandi valkostur svo
við auðvitað skelltum upp fortjaldinu..það eina sem Guðni gerði var
að tjalda tjaldvagninum


..svo fórum við á dansiball..( þegar við
vorum búnar að halda smá partí í fína fortjaldinu og skreppa
nokkrar ferðir á kaffihúsið Sumarlínu sem við tjölduðum við hliðina
á til að vera sem næst barnum

auðvitað.. til að reyna við sætu
strákana þar og skreppa á barinn)..og það var svakalega mikið
stuð,allar gerðir af hljómsveitum að spila bæði gamlir kallar og
ungir fagrir strákar..(mér fannst nú gömlu flottari)..og svakalegt
myrkur inní húsnæðinu svo að maður sá ekkert þá sem maður var að
slefa uppí alltof vel og þurfti þessvegna ekkert að vera að vanda
valið of mikið, sem getur vissulega verið kostur..

Todda slefaði
pottþétt uppí mikklu fleiri en ég því ég geri allt í
hófi...auðvitað..en já svo var það drengurinn með magavöðvana..úff
..semsagt ég höslaði einn rosalega flottan fótboltastrák með FLOTTA
magavöðva..fann það nú þegar ég var að káfa á honum..og tíndi honum
svo..ég rétt skrapp að skutla fólki á Eskifjörð og þegar ég kom til
baka að sofa í tjaldinu með Toddu og Guðna þá var hann ekkert
þar

..ég var samt búnað segja honum að ég væri í einhverju tjaldi
á tjaldsvæðinu...og þá var ég geðveikt sár því hann átti auðvitað
bara að finna tjaldið og fór aðeins að ræða tilfinningar mínar við
Toddu og Guðna..þetta var vissulega áfall..og þau sögðu mér bara að
hætta að væla og voru geðveikt vond við mig..svo ég fór bara að
sofa...og vaknaði svona 2-3 tímum seinna, næstum drukknuð í
koddanum mínum..tjaldið þurfti auðvitað að leka BARA ÞAR SEM ÉG
SVAF..spurning afhverju þau sváfu ekki þar


þá sögðu
þau að ég hefði ekki átt að grenja svona mikið yfir þessum
dreng..þetta kallar maður vini sína...En jæja þá fannst mér nóg
komið af útilegu og henti mér uppí bíl og brunaði á Eskifjörð..og
Todda og Guðni eltu mig á öðrum bíl því þau geta ekkert verið án
mín..

greinilega..þegar við mættum á Eskifjörð, rennandi blaut og
ógeðsleg kl 9 um morguninn var allt læst og Silja og Siggi voru
ekkert að hafa fyrir þvi að svara í símana..svo loksins þegar við
vorum búin að banka af okkur hendurnar og næstum sparka hurðinni úr
kom Silja..hún heyrði í okkur allan tímann..hélt bara að þetta
værum ekkert við


..en allt er gott sem endar vel..við
komum okkur vel fyrir..lágum í leti allan daginn, sváfum mismikið,
átum hamborgara, nammi og ÓGEÐSLEGA GÓÐAN kjúkling sem Siggi og
Silja elduðu handa okkur

NAMM.. svo vöknuðum við kl HÁLF 7 á
mánudagsmorguninn til að keyra norður aftur,,sem mér finnst
ótrúlega góðuur árangur hjá okkur náttmörgæsunum

mér og Toddu..en
þá er þetta búið í bili...later